grín ađ kerfinu
mig langar til þess að sýna ykkur smá bíó mynd sem ég lék i í vor.
Þetta er mynd um aðstæður fatlaðra hér á Ísland. Þetta er samt pínulítið ýkt við gerum grín að kerfinu .
eurovision 2010 - Írland
Þetta er frammlag Írlands i eurovisiion 2010 http://www.youtube.com/watch?v=boJuTFLAyek&playnext_from=TL&videos=1Z9KZBwTyjA&feature=grec
. Þetta er ágætt lag. söngkonan heitir Niamh Kavanagh. Hún hefur tekið þátt í eurovision áður. Árið 1993 vann hún med lagið "In your eyes" http://www.youtube.com/watch?v=NoNMRoM3a4w&feature=related
. Ég efa að henni takist að vinna aftur . Hvað haldið þið?
Afmćliskveđja
Kveðju hér með sendi þér
Og ég vona að þer gangi allt í hag
Því afmæli átt í dag
11 ára orðinn ert
Og afmæliskveðju færðu frá mér
Ástarkveðja Rakel
Stressandi Kvöld
.Annars er kvöldið búið að vera MJÖG furðulegt. Milli 22 og 23 varð ég var við brunalykt
. Ég hringdi strax í aðstoðina mína sem kom og sá að það var reykur og brunalykt inni í geymslu hjá mér, en enginn var eldurinn. Hún sagði mér svo að ég væri ekki ein. 5 mínútum áður hafði kona sem býr tveim íbúðum frá mér einnig hringt og kvartað yfir brunalykt. Þar hafði verið sama sagan, brunalykt og reykur í geymslunni en engann eld að finna. Einnig var skrýtið að við skyldum lenda í þessu, en Ekki íbúðin sem er á milli okkar, þar var allt í sómanum
.Aðstoðin sagði að hin konan (nágranni minn) væri einmitt að hringja í slökkviliðið og bað mig um að koma út á meðan við værum að athuga þetta. Þegar ég kom út hitti ég nágrannan minn sem sagði okkur að slökkviliðið hefði neitað að koma

og sagt okkur að hringja bara í securitas sem við gerðum. Þeir komu og voru alveg jafn furðulostnir og við. Leituðu í geymslunum en fundu ekkert og fóru á endanum án þess að hafa nokkur svör. En reykurinn var farinn og lyktin aðeins að hjaðna og ekkert meira sem þeir gátu gert
. Hreint út sagt Stórfurðulegt kvöld!!Í öðrum fréttum þá skellti ég mér á afmælis tónleika Eiríks Haukssonar á laugardaginn var og hafði mjög gaman af
. Komst meira að segja á þá ókeypis með hjálp frá frænda mínum
.
Afi
Annars er allt gott að frétta af mér.
Afmćliđ mitt
. Ég hafði hringt í pabba þann 10. og spurt hvenær hann myndi kíkja til mín daginn eftir. Hann spurði þá af hverju ég vildi fá hann, og ég sagði honum þá að kíkja bara á dagatalið. Þá fattaði Hann hvaða dagur væri
. Pabbi kom svo til mín um 14 í gær. Seinna um kvöldið var ég með grill veislu og bauð ég mömmu, Sigga, Breka frænda, ömmu, Lindu frænku og manninum hennar og svo að lokum bauð ég Inga frænda mínum. Allir mættu í grillið, nema Ingi, sem ekki hafði gert sér grein fyrir tímanum og kom eftir að allir voru farnir
. Það var samt allt í góðu og dagurinn mjög fínn
.Annars er Mamma farin að tala um að bjóða mér á Eurovision í Noregi á næsta ári í 30 ára afmælisgjöf
, en ég veit ekkert hvort það verður.
Góđir tímar framundan...
Halló Halló ! Nú er komin dágóð stund síðan ég bloggaði seinast, enda búið að vera nokkuð erfiðir tímar hjá mér
, en nú er ég mætt aftur
.
Það hefur varla farið fram hjá neinum að Aleksander Rybak vann Eurovision fyrir hönd Norðmanna með glæsibrag
. Ekki nóg með að hann hafi unnið, heldur fékk 387 stig, sem er nýtt met og sló hann þar með fyrra met Lordi (292 stig) með 95 stiga mun og var heilum 169 stigum á undan okkur Íslendingum, en Jóhanna var með 218 stig. Ég er mjög ánægð með árangur Aleksander, enda búin að spá honum sigri
.
Annars eru vonandi góðir tímar framundan. Á morgun (4. júní) ætla ég með pabba og Siggu ömmu á S
öngvaseið
. Ég hlakka mjög til, enda búin að vera mjög mikill aðdáandi "The Sound of Music" síðan ég var lítil.
Það fer svo að styttast í afmælið mitt þann 11. júní og verð ég þá 29 ára
.
Umferđarteppa í Rússlandi
Noregur...yesss
Azerbaijan....jeeeee
Grikkland...yesss
Moldavía....yess
Albanía....jeeeeeee
Króatía.....yesss
Danaveldi.......jessssss
Er frekar ánægð með að þessi lög komust áfram en veit ekki með afganginn...!
Ísbirnirnir í opnunaratriðinu heillaði mig mikið og þssi gömlu Eurovision lög.....rosa cool!
En mikið var ég fegin að Serbía komst ekki áfram...tjíii þettttttta gula hár og lag sem fjallar um skó þar að auki.....ég sem nota varla skó að nokkru ráði 
Írland frekar hallærislegt...hefði átt heima í keppni um 1968-80.....held ég
En áfram Norge......kannski ekki fyrsta sæti en sjáum til.
Allir ánćgđir
stolt siglir fleyið mitt....Eurovision á....og allir voða ánægðir enda komin tíma til!
Ég spáði rétt um 6 af þessum tíu sem komu áfram en er frekar óánægð með það að Finnland, Armenía og Rúmenía hafi komist áfram en svona er þetta. Belgía og Svartfjallaland hefðu betur átt heima þarna á laugardagskvöld. Vinur minn reddaði mér ekta Eurovision vökva Moselland happy cat sem er ekki fáanlegt á landinu og við gátum skálað eftir að hvert umslag var opnað
Pabbi gamli eða nýi 
sér vonandi um matinn fyrir eina ferðina enn þannig að kvöldið heppnist fullkomlega. Mjög hátt stillt í sjónvarpinu og ekkert að trufla...ha ha !
Eurovision nálgast !!
. Fjölmiðlar höfðu svo samband við mig í gær og vilja endilega taka viðtal við mig, sjálfan Eurovisionfíkilinn
.Annars er tölvan mín komin í lag, og er hraðari en nokkru sinni fyrr, sem ég er mjög ánægð með
.